12apríl

ATH

ný síða

http://www.afsakid.blog.is

eendilega kíkið =)
12. apríl 2008 klukkan 15:48
Svanhildur Kristínardóttir
Engin athugasemd
05febrúar

sögutími

Hæ, ég er í sögutíma. Erum á bókasafninu að gera ritgerðir og ég fór í tölvuna til að leita að heimildum og ákvað að koma með eitt mjög stutt og laggott blogg í leiðinni þar sem Elsa nokkur Gylfadóttir hefur verið að þrýsta dulítið á mig að koma með blogg. Hehe
En annars er bara allt gott að frétta af mér. Skólinn kominn á fullt og allt að gerast! Hérna á Akureyri er allt í snjó, allt hvítt, ALLT. Hata svona veður NEMA þegar maður getur verið inni í húsi í hlýjunni eeeða uppí fjalli í góðu veðri og snjóó!=) Talandi um fjallið, ég og Doddi fórum í fjallið á sunnudaginn og það var gaman.. ég datt.
Þorrablót út í Hrísey um helgina og ég ætla að mæta og kæró líka! hehe, fer í klippingu og litun á laugardaginn og get ekki beðið....hárið á mér er ógeð.
Jæja nóg um það.. ég fór suður um daginn og var hjá Emblu rósinni minni:* Það var alveg frábært! Takk fyrir allt Embla! you are the best jejeje..
okei, þetta er komið út í algjöra vitleysu.
ég held ég fari bara að halda áfram með ritgerðina mína um Íslendinga í Brasilíu.
takk fyrir mig.
05. febrúar 2008 klukkan 10:36
Svanhildur Kristínardóttir
6 athugasemdir
08janúar

08-01-08

góð dagsetning, hehe.
Mér skjátlaðist ekki í síðasta bloggi þegar ég talaði um hvernig áramótin yrðu.
Þau voru hreinlega ömurleg, ég lá heima uppi í rúmi VEIK og komst ekki einu sinni á ball. Það var alveg ömurlegt.
En þýðir ekki að væla um það! Árið 2008 á pottþétt eftir að verða gott, ég finn það á mér.
Skólinn byrjaður, ekki alveg á fullu samt, og stundataflan hjá mér er bara ósköp venjuleg.
En áfangarnir sem ég tek núna eru: (ef einhver hefur áhuga á að vita hehe)

ENS 403
ÍSL 503
STÆ 262
LAN 103
SAG 203
ÞÝS 303
og útivist

Þetta verður ágætt. Annars er ég bara í eyðu núna, tími aftur kl.14.45. Svo, því ekki að nýta tímann og blogga smávegis...þó ég hafi ekkert að blogga um.
Sæþór er búinn að borða allan gróðurinn í kúlunni sinni ! Gráðugi fiskur.
Jææja ég ætla ekki að hafa þetta lengra, er ekki alveg í blogg stuði.
Lofa að koma með annað betra fljótlega:)
08. janúar 2008 klukkan 13:36
Svanhildur Kristínardóttir
6 athugasemdir
31desember

frábćr áramót?

Jæja, þá eru jólin búin og áramótin alveg að ganga í garð. Ég ætla að koma með smá blogg svona í tilefni þess að ég ligg heima veik síðan í gær og þessi áramót verða greinilega ömurleg. En þýðir það ekki bara að árið sem er að ganga í garð verði gott? Ég ætla að trúa því.
En jólin hinsvegar voru mjög góð, ég var heima í Hrísey með family og hafði það rosalega gott. Takk allir fyrir frábærar gjafir og kveðjur:* Ég er rosalega þakklát fyrir allt sem allir gáfu mér. *væmni*
26.des kom Doddi norður og sótti mig og við vorum á Fáskrúðsfirði í tvo daga. Það var rosa fínt, smakkaði dádýrakjöt hjá mömmu hans og það var bara nokkuð gott. hehe!
En núna er árið 2007 alveg að verða búið og árið 2008 að ganga í garð, en þar sem ég er ekki þekkt fyrir að vera minnug þá ætla ég ekki að koma með yfirlit yfir árið. Ég vil bara þakka sérstöku fólki fyrir sérstaka tíma og þau vita alveg hver þau eru:) Og ég þakka öllum kærlega fyrir árið og vonandi verður næsta ár jafn gott,ef ekki betra:)
Gleðilegt ár öll sömul og eigið góð áramót.
Gangið samt hægt inn um gleðinnar dyr;)

31. desember 2007 klukkan 17:46
Svanhildur Kristínardóttir
3 athugasemdir
20desember

jólablogg

Elsa ástin er búin að reka á etir mér í svona hálft ár að blogga og hvaað gerir maður ekki fyrir vini sína á jólunum! Samt eitt skil ég ekki, hún er að fara í Mývatnssveit og er ekki með tölvu þar þannig hvað er hún að reka á eftir mér ef hún á ekki eftir að geta lesið bloggið ?? jii.
allavega, ég ætla samt að láta verða af þessu.
Jæja, allt gott að frétta síðan síðast.
Prófin búin og ég náði öllu nema stæ. JÁ KRAKKAR ég NÁÐI ÞÝSKU!!! takk takk:D
En síðan þá er ég bara búin að vera að vinna á Gallup og keyra á milli,og vá hvað það er leiðinlegt!!
Myndi aldrei nenna að keyra á milli í skólann heila önn...úff
En síðasti vinnudagurinn er á morgun og þá er komið smá jólafrí:)
Siðan milli jóla og nýárs ætla ég aðeins að skreppa austur..já, á Fáskrúðsfjörð! hehe.
Gaman að því.
En ég hef svosum ekkert spennandi að segja í þessu bloggi, hélt að þú vissir það Elsa að ég kann ekki að blogga og mér finnst það leiðinlegt:( ooog ég geri það BARA fyrir þig!!
En ég ætla að fara að drífa mig út í eyjuna góðu
Gleðileg jól öll sömul og gott ár, takk fyrir það liðna:*
blogga KANNSKI eitthað milli jóla&nýárs.
bæ:)
20. desember 2007 klukkan 22:32
Svanhildur Kristínardóttir
3 athugasemdir
07desember

próf..

Jæja krakkar.
Ætla að koma með smá blogg áður en ég fer í þýskupróf og rúlla því upp !!
Held að ég veðji á níuna á þetta..
Anyways..prófin í gangi. Búin að fara í stæ&ísl og búin að fá útúr báðum. Féll í stæ og ekki sátt, náði ísl og ekki sátt.
nóg um það!
Fer síðan í þýsku eftir tæpan klukkutíma og svo smá hvíld fram á mánudag. Þá er enska og saga daginn eftir..
OG þá er ég búin í prófunum og komin í jólafrí!! amen fyrir því.
Annars er bara svona sæmilegt að frétta hérna megin..
Fór út í eyju í gær því nýi báturinn pabba var að koma ! Glæænýr kaggi..
Rosa fínn og flottur:) Til hamingju aftur pabbi og allir hinir!
Svo er bara planið um helgina að læra eins og hross því það gengur ekki að falla í ensku og hvað þá í sögu í annað skipti! hehe..
Er samt að fara í matarboð til Elínar í kvöld! mm það verður æði.. fá smá svona dekur! híhí. Ætla samt að hjálpa henni að elda því hún ætlar að hafa þrí réttað !! sko dugnaðinn! þetta verður vonandi mjöög gott hjá henni :)
ég fór í verslunarleiðangur um daginn með Elínu og ég afrekaði að kaupa 2 1/2 jólagjafir! vúhú! þá á ég eftir að kaupa fullt í viðbót....
þetta er svo eerfiiitt..jæja, þetta kemur allt saman vonum við.
annars held ég að jólaskapið sé svona aaaðeins farið að segja til sín. samt ekkert svakalega, en ég er allavega byrjuð að hlusta á jólalög og svona gaman.
Jæja, ég er alveg tóm núna!
Ætla að fara að undirbúa mig andlega undir þetta þýskupróf
góða helgi..
07. desember 2007 klukkan 13:14
Svanhildur Kristínardóttir
8 athugasemdir
30nóvember

flýtiblogg

Þetta blogg verður skrifað mjög hratt.
Þannig svekk ef þú ert hæglæs. haha!!
Skólinn er búinn og það er ágætt. Núna eru prófin bara eftir og ég sver það.. ég hef aldrei verið svona kvíðin :/ skil ekki afhverju!! Jæja, fyrsta prófið er stærðfræði og ég SKAL ná því!! síðasti stærðfræðiáfanginn. æ ég fékk sms, það truflaði mig!!
oh well.. ég fór heim í hrísey í gærmorgun því það var enginn skóli í gær og í dag. heppin ég.
árshátíð ma í kvöld, ég fer á ballið:) elsa bauð mér! svoo er ég komin í jólafrí 11.des.
ég þarf að fara að kaupa jólagjafir! er bara búin að kaupa eina jólagjöf og á meira segja eftir að gera smá í henni..!! er ekki að standa mig. veit ekki einu sinni hvað ég á að gefa fólkinu í jólagjöf!!´
HEY þið sem ég gef jólagjöf!! HVAÐ VILJIÐI????? þetta er svo ERFITT
allavega, ég er farin í sturtu og að punta mig eitthvað áður en þetta ball byrjar:)
lifið heil

-þetta blogg var alveg ábyggilega frekar ruglingslegt því ég skrifaði það MJÖG hratt:')hahaha

30. nóvember 2007 klukkan 22:07
Svanhildur Kristínardóttir
4 athugasemdir
19nóvember

.

stutt blogg.
mánudagur í dag og ég ætlaði að hætta að borða nammi, Elsa skemmdi það. hún gaf mér after eight. það er samt ótrúlega gott! en við erum komnar með samning að hætta að borða nammi eftir daginn í dag. takk fyrir pent!
jæja,allavega. fór heim um helgina og það var mjög næs. var að passa á lau og það var bara, já fííínt! fengum vöfflur og tertu. mm!
eldaði handa mér EINNI í kvöld hakk og spagettí afþví Elsa og Karó vildu vera feitar og fá sér hambó! mitt var miklu betra.
svo bjuggum við til marssósu og fengum okkur ís, það var sweet! mmh..
ég er komin með störu á skjáinn, held að það sé bara betra að ég fari inn í rúm að sofa.
ég er ömurleg í að blogga, Elsa er miklu betri í því en ég!!
við ætlum að fá okkur jólastjörnublóm í íbúðina okkar svo það verði pínu jólalegt.
annars, já..ég er farin að sofa og kannski lesa smá:)
góðanótt.

myspace.com/svanhildur , nokkrar nýjar myndir!!

19. nóvember 2007 klukkan 22:55
Svanhildur Kristínardóttir
6 athugasemdir
14nóvember

blue

Elsa er svo dugleg að reka á eftir mér að blogga svo ég verð eiginlega að koma með eitt lítið og nett. Reyndar veit ég ekkert um hvað ég á að tala hérna.
Það er bráðum að koma helgi og það verður ljúúúft. Ætla heim í kotið til mömmu og pabba:) Síðustu helgi fór ég líka þangað en þá var verið að halda sameiginlegt afmæli bræðra minna beggja=)
Reynir átti 10 ára afmæli á laugardaginn síðasta, 10.nóv..Addi átti líka afmæli þá og varð 19 ára kallinn:), til hamingju báðir tveir! En Reynir hélt bekkjarpartý á föstudeginum og svo var fjölskyldukökuboð á laugardeginum. Það var bara ágætt.
Svooo fór ég reyndar aftur inn á Akureyri á laugardagskvöldinu því ég ætlaði í Sjallann með Elínu og Siggu. Tókst að gleyma fötunum mínum í Hrísey sem ég ætlaði að vera í um kvöldið þannig við máttum keyra aftur út á Árskógssand og sækja þau í næstu ferju. VESEN!!
 
En það fór allt á besta veg. Svo ég komst uppdressuð í Sjallann með krúsunum mínum. Það var bara æði, til svona 2.30 þegar ALLT TROÐFYLLTIST !!! vá, ég bara forðaði mér. Það var ekki hægt að anda þarna inni.
Ok ef einhver starfsmaður Sjallans er að lesa þetta þá væri ég alveg til í að vita hvernig stendur á því að svona mörgum er hleypt inn í ekki stærra húsnæði en þetta?
Jæja, nóg um það. Allt gott svosum að frétta héðan!
Er eiginlega komin í smá fíling að fara að kaupa jólagjafir. Eða allavega hugleiða það HVAÐ ég ætla að kaupa í jólagjafir handa liðinu! Þetta verður nú meiri hausverkurinn!
Við Elsa, besti sambýlingur í HEIMI, fengum looooooksins myndlykilinn okkar til að geta horft á sjónvarpið og váá það er næææs! Ég sver það, við erum búnar að bíða í ca TVO MÁNUÐI eftir þessu!!
En þýðir ekki að kvarta um það lengur, því þetta er komið :D
Við Elsa höldum að Sæþór sé kominn með krabbamein:/ Það er einhver svartur blettur á sporðinum hans!! Hvað haldiði? Eigum við að fara með hann til dýralæknis? Eeehh:)
Fékk eina jólagjöf í dag:D vúhú!
Annars er bara alveg að líða að prófunum í vma. Byrja 3.des á stæ prófi og enda 11.des á söguprófi. Hlakka til þegar það verður búið og hlakka til að ná ÖLLU:) Bjartsýnin borgar sig!
Jæja, ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili. Hafið það bara gott um helgina elskurnar.
lov

 
ég væri alveg til í að fara í smá jólafíling bráðlega! en þið?
14. nóvember 2007 klukkan 23:21
Svanhildur Kristínardóttir
6 athugasemdir
29október

bara fyrir elsu

afþví Elsa er sambýliskonan mín og hún var að reka á eftir mér að blogga.
ég nenni aldrei að blogga.
Helgin var æðisleg. fór í mývatnssveit með elsu á slægjuball og það var best í heimiiii!!! Takk fyrir helgina sæta mín:) og allir sem ég hitti!
nema manneskjan sem snéri mig á BÁÐA ökkla.
ég fékk mér gott að borða.
svamp sveinsson pizza sticks! það var rosa gott. á örugglega eftir að fá mér meira í kvöld! verst að eiga ekki öbbara, þá tæki þetta ennþá styttri tíma.
Elsa við verðum að fá okkur öbbara.. getum bara haft hann í study room afþví það er ekki pláss í kitchen;) vá, ein að missa sig í enskunni! ENDA frí í ensku á miðvikudaginn.
ég er að spá í að athuga hvort að elsa eigi einhverja góða dvd sem ég má stela af henni og glápa á afþví mér leiðist as heeell...
mig langar suður
til emblu
get ekki beeeeðið eftir að fara heim til mömmu um helgina. það er nú samt bara mánudagur þannig ég get eiginlega ekki látið mig hlakka of mikið til ....samt.
en jæja, skólinn gengur sinn vanagang og maður þarf að fara að skila inn plani fyrir næstu önn..þarf víst að ákveða hvaða kjörsvið ég ætla að taka. hm, jónas kennslustjóri var að stinga uppá að ég myndi taka kjörsvið af sjúkraliðabraut afþví ég er búin með nokkrar einingar þar. sjáum til kallinn.
Jæææja þetta hlýtur að vera nógu gott blogg fyrir elsuna mína:)
ég vil svo sjá nokkur comment á þetta!!
takk honís:*
29. október 2007 klukkan 20:58
Svanhildur Kristínardóttir
11 athugasemdir

Ađalvalmynd

Könnun

sumar eđa haust?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Svanhildur Kristínardóttir
  • Netfang: svanhildurkr@hotmail.com
  • Stađur: ak/hrisey
  • Atvinna: nemi
  • Hjúskaparstađa: frátekin
  • Annađ: http://myspace.com/svanhildur

Innskráningar kubbur